20 febrúar 2006

Allt í gúddí

Jæja ég fór aftur með Birgir upp á barnaspítala hringsins í dag og þið getið lesið um það á næstu dögum, ég nenni ekki beint að blogga en ég ætla samt að reyna að vera dugleg með mína bloggsíðu og hans síðu.
Ég var sko alveg búin á því þegar ég kom heim úr bænum, rétt náði í skólann og var alveg uppgefin, þetta er svo mikið álag að fara með Birgir á sjúkrahús því auðvitað er maður hrædd um að eitthvað sé að.
En vá hvað ég er fegin að eiga hann Birgir, hann er svo mikið yndi, svo duglegur að læra og gera allt sjálfur, ég er svo stolt af honum að ég gæti sko skrifað endalaust um það sem hann er að gera og læra.
En já, ég er að pæla að hoppa upp í rúm og fara að sofa, er sko að leka niður hérna, blogga um eitthvað skemmtilegt þegar ég hef eitthvað skemmtilegt að segja.
En ég vil benda þeim sem eru með lykilorðið á síðunni hans Birgis að það eru komnar inn alveg FULLT af myndum :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli