05 janúar 2006

Stundartaflan

Ég var að ná í stundartöfluna, ég er ekkert smá sátt, ég er í skólanum
mánudaga frá 15:20-17:15
þriðjudaga frá 15:20-18:15
miðvikudaga frá 15:20-18:15
fimmtudaga frá 16:20-18:15
föstudagar FRRRRRÍÍÍÍÍÍÍÍÍ

Vá hvað ég er ánægð með það að mánudagar eru stuttir og enginn skóli á föstudögum :o)
En ég býst við því að þetta verði erfið önn, ég er nefnilega í íslensku 633 sem er barnabókmenntir og ég er bara nokkuð viss um að ég þurfi að læra þvílíkt mikið fyrir það fag, en það kemur bara í ljós.
Ég veit ekki hvort ég þurfi að kaupa einhverjar bækur því bókalistinn minn var bara skrítinn, það stóð bara fögin en ekkert hvaða bækur og eftir hvern né neitt.

En jamm ég þarf ekki að fara í skólann á morgun því það er svokallaður stuttur dagur og ég er ekki í því dæmi þannig að ég verð bara í fríi á morgun og er að pæla að fara að lesa smá bókina sem Mía gaf mér.
Það á eftir að taka mig langan tíma að klára bókina en ég mun allavega gera það á þessu ári :op

En hvað, það kommentar enginn hjá mér um myndina hér fyrir ofan, hvað eru allir sofandi eða?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli