Splash þátturinn
Ok ég verð að viðurkenna að ég er ekkert að fíla þennan þátt, hvað þá þáttinn sem var sýndur í kvöld á Sirkus.
Það gerðsit ekki neitt í þessum þætti, rétt spjallað við piparsvein vikunnar sem var með þvílíka matsjó stæla sem ég er bara nokkuð viss um að þeir hafi ekkert verið að virka á íslensku stelpurnar, því miður.
Óli og Jói frekar mikið í því í einhverjum "svaka" limmó, úff strákar rólegir á að vera svona töff (bwahahahaha)
Stelpu greyin sem voru að sína undirfötin voru eins og þær væru ný komnar úr leiksskóla, ein var eins og hún væri að dansa fugla dansinn eða svona næstum því, ég líka bara skil ekki hvernig svona stelpur geti verið að sýna líkama sína bara til að fá athygli frá einhverjum strákum sem hafa bara eitt í huga og ég þarf ekki einu sinni að nefna það hér.
Æji ég veit það ekki, kannski er ég bara orðin svona mikil mamma, hver veit.
En allavega þá eru komnar inn myndir út sjálfu partýinu og þú þarft bara að biðja mig um lykilorðið, best að gera það á msn, ef þú ert ekki inni á msn hjá mér þá addar þú þér bara inn.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli