Skólinn
Jæja, þá er ég byrjuð í skólanum, þetta er alveg fínt en samt smá erfitt.
Ég var í íslensku í gær og hún sýnist vera svolítið erfið, þetta er líka íslenska 633. En þetta á allt eftir að ganga vel.
Ég var í Uppeldisfræði og ég er alveg að fíla þann tíma, en við erum auðvitað ekkert mikið búin að vera að læra en ég er samt komin á undan miðavið áætlunina, ég á að lesa Ronju ræningjardóttur fyrir íslenskuna og ég er byrjuð á henni, ég eiginlega bara lifi mig inn í hana, ég er búin að sjá myndina svo oft að ég man þetta alveg utanbókar.
Ég var líka alltaf með akkuru? akkuru? akkuru? á heilanum, eins og flest allir sem horfðu á þessa mynd eða er ég bara ein seme r svoan skrítin?
Ég man líka eftir því þegar ræningjarnir 12 þurftu að fara í bað, það var auðvitað ekkert venjulegt baðkar, það var bara farið út NAKINN í SNJÓINN og VELT sér upp úr snjónum.
Ég held að ég sé bara mjög fegin að vera með bað og sturtu :op
Ég las líka hina bókina í íslenski, hún heitir Raddir barnabókanna eða eitthvað, ég er sko ekki að fíla þá bók, hún er HUNDLEIÐINLEG.
En ég er búin að ákveða að fá sko flottar einkannir á þessari önn, þannig að ég verð að vera dugleg að lesa og læra.
Ég ætla mér að verða eitthvað, ég ætla ekki að vera AUMINGI.
En ég er líka að lesa þriðju bókina, ég er byrjuð á bókinni sem Mía systir gaf mér, hún er bara æðisleg, þetta er nýjasta bókin eftir Arnald, Vetrarborgir, ég er alveg að fíla þá bók, hún er bara spennandi.
En ég var búin að ákveða að lesa einn kafla á hverjum degi en ég ætla bara að leyfa skólabókunum að ganga fyrir, það er svo þvílíkur lestur sem ég þarf að lesa bara fyrir íslenskuna að ég á eftir að vera búin með örugglega 15 bækur á 3 mánuðum eða eitthvað, ég segi bara svona, en ég á eftir að vera búin með mun fleiri bækur en ég er vön, það er nú líka ekki erfitt að toppa það, ég er búin að vera svo löt við að lesa núna síðustu ár.
Ekki sniðugt get ég sagt ykkur.
En ég komst að því að ég fæ MJÖG langt páskafrí þetta árið, ég er líka mjög sátt.
Ég væri sko alveg til að fara til útlanda í fríinu, kannski ég bara geri það, en það kemur bara í ljós.
En ég á eftir að fara í tíma hjá kennara sem ég veit ekkert um, vonandi á hann eftir að vera voða næs, ég nenni ekki að vera hjá kennara sem er eitthvað leiðinlegur.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli