02 janúar 2006

Úff úff úff, seinasti dagurinn sem 18 ára, úff hvað ég er að verða gömul.
En ég ákvað að skella inn einu bloggi á meðan ég er enn 18 ára.
Ég get ekki sagt það að vera 18 ára sé eitthvað öruvísi en að vera 17 ára, maður er jú víst með sjálfræði yfir sjálfum sér en ekkert annað en það.
Ég er samt búin að ákveða að gera eitthvað á morgun, ég er að reyna að dobla stelpurnar að kíkja með mér á Duus eða Paddys eða eitthvað og bara spjalla og gera eitthvað skemmtilegt en það kemur bara í ljós.
Vonandi beila ekki allir á morgun, það er svo týpíst að það gerist fyrir mig, loksins þegar ég get gert eitthvað og nenni að gera eitthvað.

En já ég gleymdi að monta mig, ég fékk stígvelin og pilsið í jólagjöf, ég er ekkert smá ánægð, ætla svo líka að reyna að finna einhvern fínan bol við þegar ég á pening.

En vá hvað ég hef ekkert að segja, ég er að pæla að fara bara upp í rúm og horfa á Dvd myndina sem ég tók, THE 40 YEAR-OLD VIRGIN. Vonandi er hún góð.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli