Bóndadagurinn
Jæja bóndadagurinn í dag, ég var svo góð við bóndann minn að ég gaf honum sparkbíl, slopp og leikföng.
Ég verð nú að gera allt fyrir aðal gæjann, æji hann er svo mikið æði.
Hann gaf ömmu sinni blóm í morgun því hún er nú "bóndinn" á heimilinu og svo gaf hann nafna sínum líka bólm þegar við komum heim úr Reykjavíkinni.
En núna þarf ég að fara að safna, ég er að fara út í stórframkvæmdir sem geta kostað slatta.
En þetta tekur víst sinn tíma og ég hef alveg nógan tíma, er samt smá óþolinmóð.
Er búin að vera að leita á netinu og er að fíla það sem ég er búin að skoða, ætla samt að gefa mér aðeins meiri tíma í þetta áður en ég stekk á bara eitthvað, það væri svo tíbíst ég að velja eitthvað sem ég yrði hundóánægð með.
En jamm, ég ætla að vera MJÖG DUGLEG um helgina, ætla að læra, lyfta, hjálpa mömmu og kannski bara taka til í bílskúrnum, en ég sé bara til með bílskúrinn.
En allavega þá er ég ekki með neitt spennandi til aðs egja frá, þannig að ég læt þetta bara duga í bili :o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli