04 janúar 2006

Afmælið

Í gær fór ég á Paddys og hitti stelpurnar, þær sem komu voru Lilja, Gerða, Aldís, Sibba, Hanna og Elsa.
Svo kíktu Þórdís og Inga bara í smástund.
Ísak vinur min sat hjá okkur og spjallaði við okkur.
Lilja og Gerða gáfu mér ýkt sætan blomvönd, Elsa pening og Hanna 2 augnskugga og gloss.
Amma og afi komu fyrr um daginn og gáfu mér pening, ég er að pæla að kaupa mér jakka en ég væri samt alveg til í það að fá mér gat í tunguna en ég ætla ekki að gera það fyrir peninginn frá ömmu og afa.
En ég skemmti mér konunglega í gær og vona að allir aðrir hafi gert það líka.

En í dag fór ég að þrífa bílinn minn, það gekk ekkert svo vel en það hafðist fyrir rest.
Ég er að pæla að fá mér bara einhvern strák sem þrífur og bónar bílinn á X viku fresti.
Vill einhver gera það fyrir mig, ég borga auðvitað :op

En ég þarf að fara að sækja stundartöfluna á morgun og ef ég á að segja satt þá er ég ekkert að nenna að fara að byrja í skólanum, en svona er þetta bara.

Ég fékk styrkinn þannig að ég get menntað mig, ég er ekkert smá ánægð :oD

Ég þarf líka að fara á morgun í bæinn eða bara við tækifæri því ég þarf að kaupa kommóðu fyrir fötin hans Birgis.
Svo kíkir maður auðvitað á útsölurnar, það má ekki gleyma þeim :op
En ég er allavega búin að setja inn myndir úr afmælinu mínu á síðuna mína og svo er ég búin að bæta inn fleirri linkum þannig að ef ég er að gleyma einhverjum þá bara láta mig vita :op

Engin ummæli:

Skrifa ummæli