01 janúar 2006

***2005***

Árið 2005 var mjög viðburðarríkt ár hjá mér.
Þetta var bæði skemmtilegt og leiðinlegt ár, en það sem var skemmtilegt stendur alltaf uppúr og skyggir á það leiðinlega.
Það sem mér finnst standa upp úr var að halda upp á 1 árs afmæli sonar míns, þetta var svo frábær dagur, ég og Birgir í faðmi fjölskyldunnar og auðvitað líður manni alltaf best þannig.
Ég ætla líka að nefna það sem ég er búin að gera á árinu 2005.
Ég fór í skóla og stóð mig bara mjög vel, náði öllu sem mér finnst frekar gott.
Keypti mér bíl.
Komst að því hverjir væru vinir mínir og hverjir ekki.
Eignaðist nýja vini og sleit samskiptum við gamla.
Ég þurfti að þola ýmislegt slæmt en það gerði mig bara sterkari fyrir vikið.
Losaði mig við 10+ kg á nokkrum vikum ( mjög stolt )
Ákvað að byggja mig upp í stað þess að láta valta alltaf yfir mig.
Komst að því hvað fjölskyldan mín var miklu betri en ég hélt.
Fjölskyldan hjálpaði mér í gegnum námið og allt sem gerðist á árinu og er ég þeim mjög þakklát fyrir það.
Fékk heilt ár með hundinum mínum í viðbót sem var ein besta gjöf sem ég hef getað óskað mér.
Ég fór í ferðalög með fjölskyldunni sem hefur ekki gerst í mörg ár.

Það er sko margt og mikið sem ég get sagt en ég held að ég sé búin að segja nóg um árið 2005, ég get verið að gleyma einhverju en þá bæti ég því bara inn seinna.

En núna fer að styttast í það að kellan verði 19 ára og ég býst nú við því að það verði ekkert merkilegt afmæli, ég bíð bara spennt eftir 20 ára afmælinu, þá verður sko gert eitthvað merkilegt.

En ég vil þakka öllum lesendum mínum fyrir að fylgja mér í gegnum tjáningu mína á þessum blogg stað og vil bara vona að þig fylgið mér á þessu nýja og bjarta ári.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli