04 desember 2005

Væmið

~*Mamma*~

Mamma er konan sem ég lít allra mest upp, hún er bara æðisleg, það væri ekki hægt að eiga betri mömmu.
Hún gerir allt fyrir mig og er alltaf til staðar ef eitthvað er að.
Hún er fullkomin í alla staði, hún hugsar alltaf vel um þá sem henni þykir vænt um og lætur sko engan líða illa í kringum sig.
Ég hef aldrei heyrt hana tala illa um neinn og ég veit fyrir víst að ég mun aldrei gera það.
Hún er besta mamma sem hægt er að eiga og er ég mjög þakklát fyrir að eiga hana sem mömmu.
Mamma ég elska þig svo mikið :o*


~*Hanna*~*~*Sibba*~*~*Aldís*~*~*Sólveig*~*~*Íris Hrönn*~

Mér þykir svo rosalega vænt um ykkur, þið eruð svo góðar og sannar vinkonur, ég gæti ekki átt betri vinkonur en ykkur, þið kætið mig alltaf þér mér líður illa, knúsið mig þegar ég þarf á knúsi að halda, ég get alltaf talað við ykkur þegar eitthvað er að. Þið eruð bara bestar, ég veit ekki alveg hvað ég get sagt meira því þið eruð svo ólíkar allar en mér þykir svo vænt um ykkur og vil gefa ykkur risa stórt knús *KNÚS*

~*Sara*~*~*Anika*~

Þið eruð sko alveg frábærar, svo lífsglaðar og gaman að hitta ykkur þótt við hittumst ekki oft, þið þorið alveg að vera þið sjálfar og eruð ekki feimnar við að segja hvað ykkur finnst.
Mér þykir mjög vænt um ykkur og það væris vo gaman að geta hitt ykkur oftar :o)

~*Jenný*~*~*Anna Olsen*~*~*Þóra Björg*~

Þið eruð "litlu" snúllurnar mínar, alltaf svo gaman að hitta ykkur og tala við ykkur, ég man enn þegar ég hitti ykkur fyrst og þegar ég fann strax fyrir því að þið ættuð alltaf eftir að vera litlu snúllurnar mínar.
Þið eruð æðislegar í alla staði.

Núna eruð þið búin að fá allt væmna frá mér þannig að ég býst ekkert við því að vera væmin aftur í bráð :op

Engin ummæli:

Skrifa ummæli