07 desember 2005

Vesen

Ohh en leiðinlegt, ég var búin að skrifa svo langt blogg en það vildi bara ekki fara inn, en ég ætla að reyna ða muna allt og skrifa það, ég get allavega sagt ykkur það að það var gefið skít í mig í gær og þá meina ég það, yndislegasta manneskja sem til er gerði svo svaka bombu og hún lennti á mér og nýju fötunum mínum, búhú, nei nei þetta bjargasðis allt, ég setti bara fötin í þvott og allt í lagi með þau :o)
En ég hef verið að pæla hvernig jafnaldra mínir geti verið á sjimminu hverja einustu helgi og stundum á virkum dögum, ég skil þetta allavega ekki, ég meira segja hef verið að pæla í því hvort ég eigi einvherntíman eftir að drekka, ég hef allavega enga löngun til þess eins og er en auðvitað getur allt breyst, en ég ætla ekki að vera eins og sumir, lifa fyrir djammið, ég hef svo yndislegan son til að lifa fyrir og ég gæti ekki hugsað mér að vera að djamma og koma heim svo drukkin og geta ekki vaknað með honum morguninn eftir, mér finnst það allavega ekki sanngjart hans vegna.
En eins og flestir vita þá lifi ég fyrir son minn og geri allt til að honum líði vel, hann á ekkert annað skilið.
Ég var alltaf að pæla í því að halda upp á afmælið mitt helgina eftir afmælið sjálft, en ég er bara hætt við það, ég nenni ekki að fara að halda eitthvað partý svo fólk geti drukkið, ég er miklu frekar til í það að vera bara heima með Birgi og elda einhvern góðan mat og hafa það bara gott, það er líka ekki 20 afmæli, ég er bara að verða 19 ára en þegar ég verð 20 þá er ég að pæla að stinga af úr landi og fara með Birgir til Bretlands eða eitthvað, en kannski breytist þetta bara eins og allt annað.
Ég er búin að vera að mála núna upp á síðkastið, en ég er ekki alveg sátt við málverkið, er líka ekki alveg tilbúið en samt, ég þarf að breyta því eitthvað, þið getið kíkt á það á myndasíðuna mína ef þið vitið lykilorðið en annars spyrjið þið bara.
En hver vill koma með mér til útlanda næsta sumar, ég ætla ekki í djammferð, ég ætla að fara með Birgir svo hann geti skemmt sér og ég fengið smá brúnku ef þið skiljið, en endilega komið með mér til útlanda :o9

Engin ummæli:

Skrifa ummæli