15 desember 2005

Mont mont

Mont mont

Vá ég verð að fá að monta mig :o)
Ég náði öllum áföngunum og er ekkert smá sátt, ég var búin að ákveða það að ná sálfræðinni og reyna að ná uppeldisfræðinni en nei nei ég náði báðum og líka siðfræðinni, ég er svo ánægð með það að ég veit ekki hvað ég á að gera.
Ég held að þetta sé allt Birgi að þakka, ég hef aldrei náð öllum áföngum sem ég hef verið í fyrr en núna, þannig að ég er bara nokkuð viss um að þetta sé Birgi að þakka :o)

En já, ég er reyndar ekki sátt, ég fór og athugaði hvort ég fengi ekki styrkinn á næstu önn en nei, ég fæ hann ekki fullann, bara hálfan sem þýðir að ég mun ekki geta lifað á peningunum sem ég fengi, ég er búin að panta tíma hjá einni konu sem vinnur hjá bænum og ég ætla að ræða við hana því þetta er bara fáranlegt.
Hún hlítur að geta boðið mér eitthvað betra en þetta hjá atvinnumiðlun.
En ég ætla ekki að hugsa út í þetta fyrr en á mánudaginn, það er að koma helgi og ég ætla að gera eitthvað skemmtilegt.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli