18 desember 2005

Lögreglukona árið 2007

Lögreglukona árið 2007

Ég hef tekið þá ákvörðun að fara í lögregluskólann árið 2007, það er að segja ef ég næ inntökuprófinu.
Við fjölskyldan vorum eitthvað að ræða þetta áðan og svo var ég að lesa mig um hvernig inntökuprófið væri og svoleiðis.
Þetta verður auðvitað erfitt en ég ætla mér að fara í þetta ef ég hef enn áhuga á þessu námi árið 2007.
Ég ætla að demba mér í það að koma mér í gott form og reyna að fara að lyfta 3 sinnum í viku eða oftar.
Ég þarf líka að klára viss margar einingar til að komast í skólann sem ég klára í fs eða einhverjum framhaldsskóla.
Ég verð bara að vera dugleg núna og sýna hvað í mér býr.
Ég ætla ekki að vera einhver aumingi sem situr á rassgatinu heima hjá sér og borar í nefið.
ÉG ÆTLA, ÉG SKAL, ÉG GET.
Ég veit að ég get þetta alveg og ég ætla líka að sýna fram á það.
Ég vil að sonur minn sé stoltur af mér og ég veit að hann verður það þegar ég næ að ljúka náminu.
Ég ætla líka að reyna að dúxa, ég ætla ekki að rétt skríða yfir svo ég nái.
Kannski ég fari bara að lesa núna svo ég verði tilbúin þegar að þessu kemur, hver veit?

Engin ummæli:

Skrifa ummæli