12 desember 2005

Hvenær kemur snjórinn?

Ég veit að ég er klikkuð en ég bíð spennt eftir að fá snjóinn, ekki mikinn en samt smá, ég var nefnilega að kaupa snjóþotu handa syni mínum og ég vil fara með hann út.
Ég bíð bara, þótt ég sé ekki að nenna að bíða.
En jamm, ég fór í kringluna í gær, amma og afi fengu far með mér, ég get alveg viðurkennt það að ég var frekar stressuð að keyra með þau í bílnum en þetta gekk bara allt mjög vel, afi var mjög ánægður með bílinn og fannst gott að komast inn og út úr honum, hann sat auðvitað frammí.
Ég keypti bara nokkrar jólagjafir og til að pakka inn, svona box ef þið skiljið, ohh ég sá svo flott vesti, ég væri alveg til í það og það kostaði ekki mikið, en ég ætla bara að bíða eftir jólunum og útsölunum, ég er nú ekkert sú ríkasta en þetta bjargast allt :o)
En ég hefði getað keypt endalaust á son minn, en jólin fara að koma þannig að ég kaupi bara einhverntíman seinna.
Hey já, ég fór að svæfa Birgir í gær og sofnaði með honum um 21 leytið, en ég vaknaði aftur um 01:30 og slökkti á tölvunni og háttaði mig.
Draumarnir í nótt voru þvílíkt skrítnir, en ég fattaði suma þeirra í morgun þegar ég vaknaði og það er bara út af deginum í dag, ekkert sérstakur dagur hjá mér en hjá sumum, nefni engin nöfn og vil ekki einu sinni hugsa út í það, þetta er bara fortíðin og er mjög fegin að vera laus við þetta allt.
En ég verð að fara að klára þessar jólagjafir, ég nenni ekki þessu hangsi en ég reyni að klára þetta í vikunni.
En nágrannar eru að fara að byrja þannig að ég verð að fara, ég má sko ekki missa af þeim.
En solla, við verðum að fara að drífa okkur í ræktina :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli