Breyta meira
Ég er alltaf að breyta síðunni minn, ég er búin að bæta mynd af mér, tónlistarhlékkjum og svo smá hér og þar :op
En mamma er komin frá ameríkunni :o)
Hún keypti alveg fullt, hún keypti fyrir mig föt og svoleiðis á Birgir, ég var búin að láta hana fá pening.
Ég mun samt nota sumt af þessum fötum í jólapakkan hans Birgis, hann þarf ekki að fá allt núna þótt hann þurfi að nota þessi föt þegar hann er vaxinn upp í stræðirnar :o)
Ég ætla reyndar að kaupa meira, það er svo margt sem kemur til greina, þarf að hringja á 2 staði til að athuga hvort hlutirnir séu komnir til landsins.
Þarf líka að pannta, ég var alveg búin að gleyma því :op
Best að gera það strax í kvöld :oD
Ég er alveg að deyja, langar svo í klippingu og litun en það kemur bara að því þegar ég hef efni á því, jólagjafirnar ganga fyrir :o)
En ég hef svosem ekkert að segja, ég blogga meira seinna, ég er búin að gleyma öllu sem ég ætlaði að blogga um, svona er þetta að vera mamma og hafa nóg að gera (segir sú lata) nei nei, :op
Engin ummæli:
Skrifa ummæli