01 desember 2005

Búin að reyna og reyna

Ég er búin að reyna og reyna

Ég er búin að reyna og reyna að blogga og loksins gekk það :o)
Það er sko margt búið að gerast hjá mér, ég er búin að kaupa mér bíl :o)
Er ekkert smá ánægð með hann.
Fór í rvk í fyrsta skiptið á honum í dag og það gekk bara mjög vel.
Ég verð líka að segja að ég sá bara flott pils áðan, það er bara mergjað, ég er hálf ástfangin af því :op
Ég hef ekki alveg efni á því að kaupa það strax þannig að ég verð bara að safna mér fyrir því :o)
Svo sá ég alveg mergjuð stígvel áðan, þau eru bara flott, ég veit samt ekki alveg hvort ég eigi að kaupa mér þau en ég sef bara á því í nótt :o)
Ég er líka komin í jólafrí, ekkert smá gaman, ég ætla mér að gera svo margt í desember þannig að ég hef alveg nógan tíma fyrir allt :o)
En ég er að pæla hvort einhver nenni að koma með mér út að labba alla daga á sama tíma ?
Ég er líka að pæla að fara í ræktina, þarf bara að tala við eina manneskju fyrst svo það verði eitthvað úr þessu, sem ég vona svo innilega :o)
En vá hvað lífið er yndislegt, ég er ekkert smá hamingjusöm og allt gengur svo vel hjá mér.
Svona er það bara að eiga góða að, þið vitið hverjir þið eruð þannig að ég vil senda bara risa stórt knús til ykkar, þið eruð frábær :o)
En ég er að pæla að fara mála núna, ég á svo marga striga :o)
En ég lofa ykkur að það verða fleirri blogg eins og var alltaf :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli