Alveg merkilegt
Ég ákvað að taka út gestabókina þannig að þið verðið bara að vera dugleg að commenta og skrifa í spjallið :o)
En allavega þá var þessi dagur frábær.
Ég fór út að labba með Aldísi og við vorum að tala eitthvað saman um vissa manneskju sem við skulum bara kalla X ( Aldís við skulum ekkert nafgreina hana hér :op) og svo löbbum við eitthvað lengra og viti menn þarna stendur X og er að tala við einhvern kall, við gátum ekki annað en hlegið :op
Svo erum við að labba eitthvað meira og svo sjáum við það að X fer inn þar sem ég þurfti að fara inn, ég var bara hummm, ég er ekki að fara inn á eftir X, sem betur fer sjáum við Geirný og litlu skvísuna henar, þannig að við tölum eitthvað við hana og svo fer ég inn á staðinn sem ég þurfti og sem betur fer var X ekki þar :o)
Við löbbum svo meira (erum svo duglegar) og nei nei þar er X og labbar fyrir framan okkur og svo stoppar einvher bíll fyrir honum og hann hoppar inn í bíl og ég og Aldís auðvitað hlógum og hlógum :oD
Þetta var allavega eitt það fyndnasta sem ég hef upplifað í langan tíma :o)
En ég ætla að fara að ganga frá núna og gera allt fínt þannig að ég ætla að reyna að blogga meira í kvöld eða bara á morgun.
ÞAÐ ER SKILDA AÐ KOMMENTA :o)
Engin ummæli:
Skrifa ummæli