14 nóvember 2005

Próf

PRÓF

En og aftur er próf í dag, svo verður próf á miðvikudaginn í næstu viku og svo aftur próf á mánudeginum eftir það og svo skólinn bara nánast búinn :o)
Það var svo gaman í gær, biggi og Kristján kíktu á okkur, Kristján stækkar og stækkar, en er sko miklu stærri en Birgir en þeir eru á sama ár, sirka 7 mánuðir á milli þeirra.
Ég er að fara að læra núna á meðan birgir getur leikið sér, ég er reyndar bara að fara að lesa yfir þetta, ég kann þetta næstum því allt ef ekki bara allt, auðvitað ruglar maður sumum hlutum saman en ég ætla mér ekki að gera það í prófinu, ég verð að vera dugleg :o)
Svo á morgun ætla ég sko út að labba, hver vill vera memm?
Ég ætla að fara frekar snemma og vera komin heim um hágdegi svo ég geti dundað mér kannski að mála eða eitthvað. Ég þarf reyndar að skila verkefni næsta mánudag þannig að ég kannski dundi mér bara við það, ég þarf nefnilega að halda fyrirlestur og ég er ein í hóp, það eru flesstar 2- 3 en ég er með verkefni sem enginn annar í bekknum getur fjallað um þannig að ég verð bara að vera ein sem er bara gott, ekkert vesen né neitt.
En ég verð að fara að læra núna, blogga bara aftur í kvöld eða eitthvað.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli