Próf í dag
ohh ég er sko ekki að nenna að fara í próf í dag, en þetta ætti ekkert að vera erfitt próf, en ég á svo fá eftir, svo er skólinn líka að verða búinn, ég er ekkert smá fegin.
Ég fer bara bráðum að plana afmælið hjá Birgi, hann á afmæli eftir bara nokkra daga, ég trúi þessu bara ekki, hann er að verða 1 árs þann 27.nóv og ég verð þá búin að vera mamma í 1 ár líka, úff hvað þetta er eitthvað skrítið.
Ég ætla sko ekki að leyfa neinu að eyðileggja þennan dag fyrir Birgi, þetta er hans dagur og hann á að fá að njóta sín.
Hey já, ég get víst ekki gengið mikið ef það er hálka, mjaðmirnar fara sko í hakk hjá mér, ég var og er að drepast í mjöðmunum eftir göngutúrinn í gær, ég var líka eins og belja á svelli og ég er sko ekki að ljúga.
Ég verð bara að kaupa mér svona gadda til að geta gengið í vetur, ekki ætla ég að hanga bara heima og gera ekki neitt, en svo verð ég að fara að drífa mig að kaupa mér bíl, ég bara verð, þetta gengur sko ekki, ég er alltaf á bílnum hennar mömmu og það er þvílíkt vesen.
Ef þið vitið um einhvern góðan bíl sem er sjálfskiptur, lítið keyrður, með góðu skotti og 4 farþegahurðum þá megið þið alveg láta mig vita.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli