ég er búin að vera svo dugleg í dag að læra, ég er alveg búin núna en ég ætla að fara yfir þetta aftur á eftir, en ég er alveg komin með ógeð af prófum, ég skil ekki hvernig þessir kennarar nenni þessu, gera próf og fara yfir prófin.
ekki myndi ég nenna þessu.
ég ætla svo að vera dugleg að fara með Birgir út að labba, kannski á morgun eða á föstudaginn því þá er ég alveg í fríi, ég væri líka alveg til að gera eitthvað skemmtilegt um helgina, kíkja á stelpurnar og leyfa strákunum að leika sér eða bara eitthvað, ég nenni ekki að hangsa bara svona.
kannski ég dobli bara einvhern með mér í húsdýragarðinn eða bara eitthvað, ég sé bara til, ég er nefnilega ekki að fara í próf á mánudaginn þannig að ég er alveg til að gera eitthvað skemmtilegt, ef ég ætti bíl þá myndi ég örugglega bara rúlla til Míu systir og dobla hana að gera eitthvað með okkur, en ég ætla að fara að taka smá til og ganga frá og sollis og fara svo í skólan, blogga seinna þegar ég hef eitthvað að segja.
OO það væri svo gaman ef þú kæmir í bæinn um helgina!!
SvaraEyða