19 nóvember 2005

Laugardagur :op

Laugardagur :op

Jamm, það er víst kominn laugardagur, ég veit ekkert hvað ég á að bralla í kvöld, væri alveg til að skella mér á rúntinn eða eitthvað, en það kemur bara í ljós, ég er allaveg búin með mest megnið af verkefninu, þarf bara að bæta smá við það og svo bara BÚIÐ :op
Við vorum meira og minn bara heima hjá ömmu og afa í dag, það var sko jólabakstur í gangi og það var sko ekkert leiðinlegt.
En vá ég veit ekkert hvað ég á að gera í kvöld, væri svo til að gera eitthvað skemmtilegt, ég veit um eitt partý en ég veit ekkert hvort maður sé velkominn þangað, þetta er held ég bara svona lokað partý, en hver veit, kannski ég tékki bara á því :op
En ég ætla að fara að vera með fjölskyldunni, ég hef hvort sem er ekkert að segja, en látið mig vita ef þið vitið um eitthvað skemmtilegt í kvöld :o)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli