18 nóvember 2005

Föstudagur

Föstudagur :o)

Yes það er loksins kominn föstudagur, ég ætlaði mér að vera svo dugleg í dag, vaknaði rétt fyrir 7 í morgun :oD en ég sofnaði aftur :op
En ég fór allavega að vesenast í þessu afmælisdóti, er búin að kaupa smá en það er sko langt í land :op
Ég fór upp í skóla í dag og ætlaði að prenta út en nei það er ekki hægt að prenta út í lit , algjör bömmer því ég ætlaði að prenta boðskortin en ég geri það bara á sunnudaginn :o)
Það eru alltaf að bætast við hverjum maður eigi að bjóða, vonandi mæta bara sem flestir :o)
En nóg um afmælið, ég á mér sko alveg líf :op
Ég átti að fara á fund í dag en honum var því miður frestað og ég þurfti því miður að fresta fundinum sem á að vera eftir viku en það verður bara að hafa það.
Ég verð að fara að klára þetta verkefni, ég veit ekki alveg hvernig ég á að hafa það, HJÁLP einhver, neinei ég segi bara svona, ég þarf bara að leggja höfuðið í bleyti og reyna að finna eitthvað útúr þessu, þetta á allt aftir að heppnast, vonandi :op
En endilega bendið mér á einhverjar skemmtilegar síður til að skoða, ég skoða alltaf bara sömu síðurnar og það eru svo rosalega fáir sem er svona duglegir að blogga eins og ég :op
Þótt ég hafi ekkert merkilegt að segja þá blogga ég samt, þetta er líka eins konar dagbók fyrir mig svo ég muni hvað ég er búin að vera að bralla upp á síðkastið :op

Engin ummæli:

Skrifa ummæli