15 nóvember 2005

Eitt leiðir....

EITT LEIÐIR AÐ ÖÐRU

Jæja, þá ætla ég að vona að einhverjir commenti núna hjá mér, allavega þá er ég svolítið forvitin hverjir þetta eru sem segjast hafa þekkt mig í spurningarkönnunni.
Er einhver til að gefa sig fram, svo er það annað, ég er enn að bíða eftir myndum af ykkur, ég er búin að redda nokkrum og ég vil fá fleirri svo ég geti klárað þetta dæmi.
Ég er líka komin með gestabók þannig að það væri gaman ef þið mynduð kvitta fyrir ykkur.
Hey já, ég skil ekki hvað manneskja er að lesa bloggið mitt ef hún hefur ekki hugmynd hver ég er, þúst halló, ekki er ég að lesa blogg hjá manneskjum sem ég þekki ekki.
En það þýðir ekkert að vera að pæla í þessu.
Ég hef svo lítið að segja, væri svo til að hafa eitthvað að segja svo ég geti skrifað það hérna núna, ég hef nefnilega ekkert að gera og nenni engu, þvílík leti í mér, vantar bara spark í rassinn svo ég komi mér af stað og klári kannski að mála þessi málverk sem ég er byrjuð á. Ég ætlaði mér alltaf að klára þau bara í róglegheitunum í Desember en ég er búin að plana svo mikið í Des þannig að ég er ekkert viss að ég nái að gera allt sem ég ætla mér.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli