05 nóvember 2005

bull og vitleysa í mér.

Þvílík þvæla sem ég er alltaf með, ég sko gerði nýja síðu en ég var ekki alveg að fíla hana þannig að ég er bara komin hingað aftur, ætli ég haldi mér ekki bara hér.
Ég fór í gær og leigði mér DVD og hitti hana söru mína, ekkert smá gaman að hitta hanan og spjalla við hana, hún er svo mikil snúlla.
En ég fór svo bara heim og horfði á DVDið og þetta var alveg jög fín mynd, en vá hvað ég væri til að gera eitthvað af mér núna í kvöld, það er frítt inn á Traffic fyrir okkur stelpurnar og Páll Óskar er eitthvað að spila eða eitthvað, man það ekki alveg.
Ég væri sko alveg til að kíkja, hver vill fara með mér?
Ég verð líka edrú þannig að það eru ekki margir sem myndu nenna með mér.
Hey já, ég var að horfa á Idol í gær og ég ætla sko að taka þátt á næsta ári en ég væri alveg til að vera í hljómsveit, ég væri þessvegna til að þrífa bara ef ég mætti vera í kringum þessa hljómsveita fíling, en svona er þetta bara.
En ég ætla að fara að hugsa um Birgir, hann er orðinn svo þreyttur.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli