16 nóvember 2005

Alveg...

ALVEG

Já há, núna var ég að komast að því að manneskjur sem ég er ekkert að fíla, hálf **** eru að lesa bloggið mitt, skrifa inn á síðuna nafnlausar en allavega ein er búin að koma fram, svo er alltaf eihver að skrifa nafnlaust í spjallið hjá mér, hvað er eiginlega málið með það, fyrst manneskjan er að lesa þetta blogg þá ætti hún alveg að geta komið undir nafni, það er allavega það sem mér finnst.
En ég er nú eiginlega bara búin að ákveða það núna að fá mér aðra síðu og hafa hana LÆSTA, ég er ekkert sátt við það að fólk sem er búið að stinga mig oft og mörgum sinnum í bakið og líka fjölskyldu mína sé að lesa bloggið mitt, eins og ég er búin að segja í öðru bloggi þá er þessi síða engöngu fyrir mína bestu vini og mína æðislegu fjölskyldu.
Ohh ég er svo svekkt því ég er loksins búin að gera síðuna eins og ég vil hafa hana en NEI þá eru einhverjir sem ég vil ekki að séu að lesa hjá mér að lesa.
Ég ætla bara að sjá til ef ég held áfram að blogga, ég held að það sé bara best fyrir mig að hætta.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli