Jæja, það er komið vetrarfrí, guð hvað ég er fegin að þurfa ekki að fara í skólan á morgun, en ég ætla sko að vera rosa dugleg á morgun, þarf að fara í bankann að borga skuldir og sollis, ekkert háar en samt skuldir :o/
Ég var sko super dugleg áðan, ég fór að lyfta :op
En bara í smá stuns, ég hafði ekki tíma í meira, mamma var sko að elda og með Birgir, en ég ætla að reyna að vera mjög dugleg að lyfta núna, ég ætla mér að vera sko súper kroppur fyrir jól, verð sko að missa helst 3-4 kg í viðbót og fá vöðva og sollis, er það ekki mega flott?
Ég þarf samt sko að vera dugleg að læra, er að fara í próf á mánudag og ég er sko ekkert að skilja efnið neitt vel, ætla að reyna að lesa eitthvað yfir þetta á morgun áður en ég fer út að labba og sollis, en jamm og já, ég er að gera svo margt á meðan ég er að skrifa þetta blogg, ég er að bæta inn myndum á síðuna hans Birgis og skoða önnur blogg en ég verð að hætta núna, ætla líka bráðum upp í rúm að sofa :o)
jeiijjj það er svo gott að vera komin i vetrarfrí... en henna vildi bara láta vita að eg er komin með heimasiðu:D:D
SvaraEyðajamm i know, er búin að bæta þér inn í hlekkina :o)
SvaraEyðaTil hvað ertu í vetrarfríi?
SvaraEyðaég fer í skólan á mánudag, ég fékk eiginlega bara frí í dag því ég er ekki í skólanum á föstudögum
SvaraEyða