25 október 2005

jamm og já

Núna get ég bloggað og þið lesið, en allavega fór ég í gær í kröfugönguna, það var bara mjög gaman, ég á eftir að setja inn myndir í myndaalbúmið þannig að þið getið skoðað, það var svo mikið að konum þarna og smá af körlum, þetta var svo GAMAN, ég trúi því varla að það hafi mætt svona mikið af fólki, það var svo mikil umferðateppa á leiðinni að við komumst varla áfram, Birgir var svo stilltur og hafði svo gaman af þessu, en ég ætla svo að fara aftur ef það verður önnur ganga eftir X mörg ár, en allavega þá er ég bara heima og er að fara að gera mig til, ég er samt ekkert að nenna að fara í skólan á eftir, væri miklu frekar til að vera bara heima og hafa það næs, en ég verð víst að mennta mig, ég ætla ekki að vera einhver aumingi, ég ætla að standa mig í skólanum, en já í hinu blogginu var ég að biðja ykkur að senda mér mynd af ykkur svo ég geti gert smá verkefni, þetta verður sko mjög flott, ég get lofað ykkur því, en ekki vera feimin að senda mér mynd af ykkur.
En ég ætla að halda áfram svo ég geti farið í skólan á eftir, ég þarf að gera fullt, en ég lofa að blogga sem fyrst :op

1 ummæli:

  1. Nafnlaus8:36 e.h.

    gaman að geta lesið bloggið þitt aftur:D:D

    SvaraEyða