ég er búin að vera að pæla í því að breyta lúkkinu á síðunni, ég er ekki að nenna að vera með þetta lúkk.
Ég veit bara ekki alveg hvernig ég á að fá mér, það er svo margt í boði.
En já, ég var í prófi áðan og mér gekk ekki vel, ég hefði getað grátið, þetta var svo ömurlegt hjá mér, en ég verð bara að vera duglegri, þetta gengur sko ekki.
En allaveg þá er ég að deyja, ég væri svo til að geta æft líkamsrækt, það er bara svo erfitt með litla kríli, ég reyni nú að redda þessu, ég vil bara ekki láta mömmu alltaf passa, hún á sér nú alveg líf, ég verð bara að bíða þangað til Birgir verður eldri en á meðan fitna ég og ég á eftir að enda í þáttunum you are what you eat en ég vil ekki verða svoleiðis, ég redda þessu bara, eins og öllu öðru.
Ég fór og gerði leyndóið áðan, það var mjög fínt, en bara svo þið vitið er ég ekki alveg tilbúin til að segja þetta strax, en ég geri það þegar ég er tilbúin. Ég fékk líka mjög góðar fréttir áðan, en því miður get ég ekki skrifað þær hér, viss manneskja gæti verið að lesa þetta, en við mæðgunar erum svo feignar yfir þessum góðu fréttum.
Ef þið vissuð hvað ég væria ð meina mynduð þið vera líka ánægð fyrir okkar hönd (hendur) :op
En ég ætla núna að fara að hoppa upp í rúm að lesa og svo bara að skella sér að sofa, ég hef ekkert annað að gera, þarf reyndar að vera smá dugleg á morgun þannig að það er abra fínt að fara snemma að sofa.
Vonandi finnur þú pössun fyrir Birgir, leiðinlegt að geta ekki hjálpað þér...:S
SvaraEyða