28 október 2005

brrrrrrrrr KALT úti

Úff hvað það er kalt úti, ég þurfti að skreppa áðan að gera hitt og þetta og ég var að deyja úr kulda, ég var nú hálf vond mamma að fara út með Birgir í þessu veðri, en ég pakkaði honum inn í teppi og svo var hann í nýja gallanum þannig að honum var ekki kalt, ég er svo fegin að hafa keypt gallann áður en þetta vibba veður kom.
Mía systir kom og ætlar að vera hjá okkur í nótt, það er svo gott að fá hana, verst að hún geti ekki verið hérna oftar, en maður verður bara að bíða þangað til hún er búina með skólann.
Mía gat ekki tekið Óskar með þannig að hann er bara í webcamerunni hérna, ég er að passa hann í gegnum tölvuna, ekki sniðugt ?
Ég ætlaði í afmæli hjá Ingunni Emblu systur Hönnu vinkonu en ég treysti mér abra ekki út í þetta veður með Birgir, það er búið að vesna svo síðan fyrr í dag.
En ég fer bara við tækifæri, er með pakka og allt, vona að hún verði ánægð, annars skilar hún þessu bara.
En ja, mamma er að fara út til USA í des og ég ætla sko að láta hana kaupa fullt á Birgir og eitthvað á mig.
Ohh ég nenni ekki að læra, ég er komin með glósurnar og spurningarnar en ég nenni bara ekki að læra, ég er bara eingan vegin í stuði til þess, en ég mun læra á morgun og sunnudag, ég þarf að gera smá leyndó á mánudag þannig að ég hef mjög líklega engan tíma til að læra þá, en ég ætla að fara að hugsa um Birgir og kannski læra, en ég blogga seinna.

Engin ummæli:

Skrifa ummæli